Í dag var dótadagur á Ökrum og máttu börnin þá koma með eitt dót að heiman. Þau komu mjög spennt um morguninn og voru dugleg að leika saman og leyfa hvert öðru að ,,prófa,, sitt dót.
...
Í gær var öskudagur og þá komu flest börnin annað hvort í búningum eða náttfötum. Dagurinn var frábær í alla staði. Fyrir hádegi fengu öll börnin að koma í salinn og reyna að ,,slá köttinn úr tunnunni,,. Þegar kassinn opnaðist þá fengu öll börnin poka með snakki se...
Mikil áhersla er lögð á útiveru á Ökrum og látum við veðrið aldrei stoppa okkur. Mikil hamingja er ætíð þegar hægt er að leika sér í snjónum.
...
Börnin hafa unnið undanfarið ýmis verkefni tengd þorranum. Þau hafa fengið fræðslu og unnið með mismunandi efnivið. Á bóndadag fengu þau að smakka þorramat og voru allir á leikskólanum hvattir til að koma í einhverjum ullarfötum.
...
Á sunnudaginn er 13 ára afmæli leikskólans og af því tilefni þá gerðu börnin á þremur elstu deildunum veggspjöld með starfsmönnum deildanna. Þar nefndu þau það sem þeim finnst skemmtilegt að gera á Ökrum og skreyttu síðan áður en þau voru hengd upp.
...
Allt skólaárið eru fara öll börn leikskólans í skipulagða íþróttatíma undir stjórn íþróttafræðings. Það vekur ætíð mikla lukku og er unnið með mismunandi færniþætti.
...