Á sunnudaginn er 13 ára afmæli leikskólans og af því tilefni þá gerðu börnin á þremur elstu deildunum veggspjöld með starfsmönnum deildanna. Þar nefndu þau það sem þeim finnst skemmtilegt að gera á Ökrum og skreyttu síðan áður en þau voru hengd upp.