Við á Ökrum erum með kennara sem sinnir snemmtækri íhlutun. Hún heitir Jóhanna Gunnarsdóttir.
Sá sem sinnir starfinu styður við öll börn leikskólans. Hann leggur áherslu á að grípa snemma inn í ef um frávik er að ræða og huga að markvissum aðgerðum til þess að stuðla að þroskaframvindu barna. Þetta á við um málörvun eða örvun annarra þroskaþátta. Starfsmaður er til stuðnings við allar deildir leikskólans. Hann styður við börn inni á deildum, tekur þátt í hópastarfi með fjölbreyttum málörvunarverkefnum og vinnur að einstaklingsmiðuðum verkefnum með börnum og smærri hópum. Lögð er mikil áhersla á að veita markvissa málörvun í gegnum leik, söng, lestur og daglegar aðstæður.