Karellen
staff
Adrienn Horvath
Leiðbeinandi
Lyng
Ég heiti Adri og ég er frá Ungverjalandi. Ég elska að vinna með börnum, því þau sjá heiminn á svo skapandi og heiðarlegan hátt og það hvetur mig á hverjum degi. Mig langar að skapa öruggt og jákvætt umhverfi fyrir þau þar sem þau geta lært, þroskast og skemmt sér. Þau eru framtíð okkar og mig langar að hvetja þau þannig að ekkert sé ómögulegt og að þau geti orðið allt sem þau vilja. Þá langar mig að aðstoða þau að trúa á sjálfan sig, að læra að virða hvert annað og náttúruna. Í frítímanum mínum mér finnst gaman að fara í gönguferðir, mála og stunda jóga.
staff
Anna Sif Björgvinsdóttir
Stuðningur
Ég er 32 ára, fædd og uppalin á Sauðárkróki. Ég flutti suður árið 2014 og fór að vinna á leikskólanum á Seltjarnarnesi og vann þar í 4 ár bæði sem leiðbeinandi og í stuðning. Eftir leikskóla árin sneri ég mér að verslunarstjórnun og vann við það fyrst hjá barna fatamerkinu Iglo+Indi og síðan hjá fyrirtækinu S4S, fyrst í skóbúð og síðan í netversluninni bæði sem verslunarstjóri. Ég bý í Garðabæ ásamt kærastanum mínum og strákunum okkar tveim. Ég hef frá unga aldri haft mikinn áhuga á börnum, byrjaði ung að passa börn og var það mitt helsta áhugamál á yngri árum ásamt því að stunda næstum allar þær íþróttir sem í boði voru. Ég er mjög opin, kraftmikil og lífsglöð og á mjög auðvelt með að kynnast fólki. Að vera í kringum börn gefur mér mikið, þau eru svo hreinskilin og kenna manni eitthvað nýtt á hverjum einasta degi.
staff
Berta Sigríður Ólafsdóttir
Leiðbeinandi
Ég er fædd og uppalin à Vopnafirði. Ég er hárgreiðslumeistari að mennt og er gift og à 2 uppkomin börn. Það er svo gaman og gefandi að vinna með börnum.
staff
Davíð Hauksson
Leiðbeinandi
Mýri
Ég heiti Davíð Hauksson og er íslenskur en fæddist í Þýskalandi. Ég hef stúdentspróf, EMT nám og hef unnið á Ökrum síðan apríl 2024. Ég er einnig atvinnuvíkingur og náttúruunnandi. Ég vann á bráðamóttöku áður en ég hóf störf á Ökrum og sú reynsla hefur nýst mér vel í mínu starfi. Mér hefur alltaf fundist gaman að vinna með börnum og hef unnið bæði á Bæjarbóli og Kirkjubóli. Einnig vann ég með börnum sem fimleikaþjálfari í Stjörnunni þegar ég var að æfa sjálfur. Ég vinn sem starfsmaður á deildinni Mýri og sé um að skipuleggja og sjá um skemmtilega þemavinnu í hverjum mánuði.
staff
Emmanuel A. Ayuboya
Háskólamenntaður starfsmaður
I’m Emmanuel Akpen Ayuboya, and I’m thrilled to be part of Akrar Preschool in Garðabær, where I started on October 23, 2024, as a part-time teacher. Originally from Ghana, I’m pursuing a master’s degree in international studies in Education at the University of Iceland. I’ve had such a great time getting to know everyone while working in all four departments—Mýri, Engi, Lýng, and Mói! Every day has been a wonderful experience, and I’ve loved every moment spent with the kids and the friendly staff here. Growing up in Ghana has given me a unique view of the importance of a caring and engaging learning environment. When I’m not teaching, I enjoy reading, discovering new cultures, and spending time outdoors. What I love most about being at Akrar is the chance to make a positive difference in the children's lives. Watching their curiosity and creativity blossom through play-based learning brings me so much joy, especially when they light up with excitement after a discovery. Oh, and I’m passionate about storytelling! I often use it to make learning even more fun and engaging for children. Thank you for welcoming me into the Akrar family; together, we will inspire the next generation. Thank you.
staff
Eva Dís Gunnarsdóttir
Leiðbeinandi
Lyng
Eva Dís heiti ég og hef ég búið alla ævi i Hafnarfirði en flutti í Kópavog í ágúst. Ég er á besta aldri, með víðtæka reynslu af að vinna með börnum og öldruðum. Ég vann á Hrafnistu í sjö ár áður en ég byrjaði á Ökrum . Ég byrjaði 19. ágúst og líkar vel að vinna með börnum. Eftir sjö ár á Hrafnistu fann ég hvað ég saknaði þess að vera með börnum. Þau eru svo einlæg. Ég er búin að ljúka ýmsum námskeiðum. Ég byrjaði á stuðningsfulltrúabraut í FG en ákvað að hætta og ná mér í reynslu á vettvangi. Mér líður vel á Ökrum og finnst góður starfsandi þar og starfsfólkið frábært.
staff
Faten Albainy
Leiðbeinandi
Mói
Ég heiti Faten. Ég fluttist frá Sýrlandi því það er ekki öruggt að búa á landinu mínu og þarf ég að búa á landi þar sem ég, börnin mín og maðurinn minn erum örugg. Á Íslandi upplifum við mikið öryggi og finnst okkur fólkið hér mjög vinalegt. Er mjög þakklát fyrir að fá að búa á Íslandi. Ég hef mikla ástríðu fyrir að vinna með börnum því þau eru með svo ótrúlega jákvæða orku og eru alltaf hreinskilin. Ég er afar þakklát fyrir að hafa fengið starf á Ökrum. Ég vona að ég verði svo heppin að fá að vinna hér áfram í framtíðinni. Áhugamál mín eru að elda og að hanna umhverfi. Mér finnst afar gefandi að aðstoða aðra. Ég er að læra meiri íslensku til að geta átt meiri samskipti við börnin, foreldra og samstarfsfólkið mitt. Ég reyni að læra í gegnum umhverfið mitt og er einnig að fara á námskeið hjá Garðabæ. Ég óska ávallt öllum gleði og hamingju og vona að ég geti gefið öllum til baka það sem ég hef fengið hér á landi.
staff
Fjóla Grétarsdóttir
Íþróttafræðingur
Ég er alin upp í sveitinni við rætur Hveragerðis. Útskrifaðist sem íþróttakennari frá Laugarvatni 1990 og bætti við mig íþróttanuddaranámi í Hollandi 2004 og diplómanámi í næringarfræði frá HR 2007. Hef einnig sótt fjölda námskeiða tengd minni menntun. Allan minn starfsferil hef ég unnið við hreyfingu og heilsueflingu fyrir börn og fullorðna. Fyrstu 10 árin starfaði ég sem íþrótta- og sundkennari við grunnskóla í Reykjavík samhliða kennslu á líkamsræktarstöðvum. Ég bjó í Hollandi í 23 ár með eiginmanni mínum og okkar þremur börnum, fædd ‘92 og tvíburar ‘94. Þar starfaði ég í líkamsræktarstöðvum í þremur borgum, m.a. fyrir Háskóla Amsterdam. Vann á vegum Borgarskrifstofu við hreyfingu og hollenskukennslu fyrir innflytjendur. Ég rak einnig íþrótta- og heilsunuddstofu í 10 ár, bæði í Hollandi og síðar á Íslandi. Sumarið 2023 fluttum við heim til Íslands í faðmi barna okkar og barnabarna, sem eru fimm á aldrinum 0–3 ára. Sl. haust hóf ég störf á Ökrum sem hefur verið virkilega skemmtilegt með góðu fólki. Í vetur hefur starf mitt verið íþróttakennsla og uppbygging á markvissri hreyfingu fyrir börnin bæði inni og úti. Þetta hefur verið frábær reynsla, og ég nýt þess að vera með þessum duglegu börnum. Áhugamálin mín eru fjölbreytt, en þar má helst nefna útivist, hreyfingu, næringu og uppeldismál, ásamt samveru með fjölskyldunni.
staff
Gabriela Stasiek
Háskólamenntaður starfsmaður
Lyng
Ég heiti Gabriela Stasiek. Ég kem frá Póllandi. Ég útskrifaðist með meistarapróf í íþróttafræðum frá háskóla í Kraków í júlí 2024. Ég er íþróttafræðingur og elska allt sem tengist hreyfingu - dans, sund, blak og fleira. Ég elska að upplifa mismunandi hluti, að kynnast ólíkum einstaklingum, ólíkri menningu og að ferðast. Ég hef öðlast mikla reynslu af því að vinna með börn í gegnum sundkennslu, í gegnum pössun, sem systir og einnig í gegnum vettvangsnám meðan á fimm ára námi mínu stóð. Ég elska að aðstoða og fylgjast með börnum upplifa heiminn í gegnum hreyfingu og leik. Að vinna með börnum færir mér mikla ánægju og hamingju. Fjölbreytnin sem felst í að vinna með börnum gerir minn dag ætíð betri og nýt ég þess að hlúa að þeim.
staff
Guðrún Harpa Kristinsdóttir
Matartæknir
Ég ólst upp í Hafnarfirði, er gift og móðir þriggja drengja. Ég er stúdent frá Flensborgarskólanum í Hafnarfirði. Ég útskrifaðist sem tækniteiknari frá Iðnskólanum í Hafnarfirði vorið 2008. Jólin 2022 útskrifaðist ég sem matsveinn frá Hótel- og matvælaskólanum og svo sem matartæknir vorið 2023. Mín helstu áhugamál eru samvera með fjölskyldu og vinum, matargerð, bakstur og ferðast. Ég hef unnið hérna í eldhúsinu á Ökrum síðan í mars 2013 og líkar vel ?
staff
Guðrún Valgerður Ásgeirsdóttir
Leikskólastjóri
Ég ólst upp í Garðabænum til tvítugs og er komin aftur í þennan góða bæ. Ég á tvær dætur og þrjú ömmugull. Ég hef unnið á öllum skólastigum í rúm þrjátíu ár og finnst mjög mikilvægt að huga vel að menntun á Íslandi. Ég er með kennsluréttindi á öllum skólastigum en vel að hlúa að yngsta aldurshópnum því ég veit hve mikilvægt er að byggja upp góðan grunn. Ég lauk einnig meistaranámi í íþróttafræðum og er með diplómu í Menntun án aðgreiningar og hef lokið nokkrum áföngum í sérkennslu ungra barna og í stjórnun menntastofnana. Ég hóf störf sem leikskólastjóri á Ökrum í byrjun apríl 2024 og er mjög þakklát fyrir þennan dásamlega vinnustað. Hér ríkir góður andi og tel ég börn og foreldra á Ökrum heppin með það starfsfólk sem hlúir að börnum þeirra. Ég hef fjölmörg áhugamál sjálf og snúa þau að því að rækta sál og líkama. Ég er mikið með fjölskyldunni minni og iðka sjálf ólíka hreyfingu úti í náttúrunni.
staff
Gyða Sif Siggeirsdóttir
Leiðbeinandi
Mýri
Ég hef starfað á nokkrum leikskólum. Ég er búin að vera á Ökrum síðan í maí. Vann meðal annars áður sem leiðbeinandi í frístund í Barnaskólanum og er með mikla reynslu af vinnu með börnum. Ég útskrifaðist af félagsvísindabraut Fjölbrautarskóla Garðabæjar árið 2020. Árið 2021 útskrifaðist ég einnig frá Lýðskólanum á Flateyri á Útivistabraut. Ég byrjaði að vinna hjá Hjallastefnunni árið 2021 og vann sem hópstjóri með 2 ára drengjum í eitt ár. Ég hef líka verið að passa börn síðan ég var 16 ára og geri það enn þann dag í dag.
staff
Hajar Sara Labyad
Leiðbeinandi í leikskóla
Engi
Ég heiti Hajar Sara Labyad. Ég fæddist 17. febrúar 2006. Ég er fædd og uppalin á Íslandi. Foreldrar mínir eru frá Marokkó en ég hef alltaf búið í Garðabænum ásamt foreldrum mínum og tveimur bræðrum mínum. Ég á góðar æskuminningar úr bænum og hef sterka tengingu við samfélagið hér. Ég lauk grunnskólanámi í Garðaskóla og hóf nám í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ. Eftir tvö ár skipti ég yfir í Menntaskólann í Kópavogi þar sem ég hef getað sinnt námi og áhugamálum mínum samhliða. Ég hef alltaf haft mikinn metnað í að læra og þróa mig áfram. Ég hef sérstakan áhuga á líkamsrækt, heilsu og því að tileinka mér nýja hluti – hvort sem það tengist vinnu, námi eða persónulegri þekkingu. Ég á auðvelt með að læra og tileinka mér nýja færni, það hefur reynst mér vel í starfi. Ég hóf störf á Ökrum í miðjum maí og hef á þeim tíma lært ótal margt. Þar hef ég öðlast reynslu í að vinna með börnum á mismunandi aldri, lært hvernig hægt er að skapa öruggt og traust umhverfi fyrir þau og hvernig best er að bregðast við mismunandi aðstæðum og þörfum barna. Mér finnst skipta miklu máli að börn finni að þau séu örugg, velkomin og metin og legg ég mig fram um að mæta þeim af virðingu, hlýju og jákvæðni. Ég tel að þessi reynsla, ásamt áhuga mínum á heilsu og vellíðan, hjálpi mér að vera jákvæður og traustur stuðningur fyrir börnin sem eru á Ökrum. Markmið mitt er alltaf að stuðla að góðri stemningu, öryggi og gleði í daglegu starfi.
staff
Hekla Fönn Vilhelmsdóttir
Leiðbeinandi
Ég heiti Hekla Fönn og hef unnið á Ökrum síðan janúar 2024. Ég er uppalinn í Kópavogi og er með stúdentspróf frá Menntaskólanum í Kópavogi. Ég stunda nám við Háskóla í Ísland í landfræði. Mitt helsta áhugamál er handbolti en ég spila með meistaraflokki HK. Ég hef einnig unnið sem þjálfari og á íþróttanámskeiðum fyrir börn.
staff
Hildur Anna Valdimarsdóttir
Leiðbeinandi í afleysingum
Ég útskrifaðist frá Versló árið 2021 og flutti þá til Parísar í eitt ár og vann sem Au pair. Eftir að ég kom heim vann ég á Lyngi í eitt ár sem leiðbeinandi í fullu starfi og eins sem stuðningur sem var mjög lærdómsríkt. Ég er í sálfræði í Háskóla Íslands og vinn nokkra daga í viku og flakka þá á milli deilda. Ég var á leikskóla í Vesturbænum en hef búið í Garðabæ frá því ég byrjaði í grunnskóla. Það besta við að vinna á Ökrum er að vera með börnunum að því það er svo gefandi og skemmtilegt.
staff
Indíana Ýr Henriksdóttir
Leiðbeinandi
Ég er 22 ára gömul, uppalin í Árbænum. Ég bý í Garðabæ ásamt kærasta mínum og 1 árs dóttur okkar. Ég byrjaði að vinna á Ökrum í september en ég hef áður unnið á leikskóla sem sumarstarfsmaður. Mér finst fátt skemmtilegra en að fá að vinna með börnum og fá að taka þátt í því jákvæða og skemmtilega starfi sem fer fram á Ökrum. Mín helstu áhugamál eru hreyfing, útivist og að ferðast. 
staff
Inga Dóra Hauksdóttir
Aðstoð í eldhúsi
Èg heiti Inga Dóra. Ég er fædd í Svíþjóð en er íslensk. Èg er búin að vinna á Őkrum í mörg ár og það er gott að vinna hér. Èg bý í Garðabæ.
staff
Ingibjörg Ása Júlíusdóttir
Aðstoðarleikskólastjóri
Ég er kölluð Inga Ása og er 40 ára. Hef búið í Hafnarfirði nánast allt mitt líf, fyrir utan nokkur ár í Danmörku. Ég er þriggja barna móðir og gift Inga Þór. Ég útskrifaðist frá Háskóla Íslands árið 2011, en hef starfað í skólakerfinu frá árinu 2009. Á þessum tíma hef ég öðlast víðtæka reynslu af fjölbreyttum verkefnum innan menntakerfisins, bæði í samstarfi við nemendur, foreldra og samstarfsfólk. Ég legg mikla áherslu á jákvætt og uppbyggilegt umhverfi. Fyrir utan vinnu hef ég gaman af ferðalögum innan sem utanlands, útiveru, hreyfingu og að eiga gæðastundir með fjölskyldu og vinum.
staff
Ísabella Rós Magnúsdóttir
Leiðbeinandi
Ég heiti Ísabella Rós Magnúsdóttir og er 19 ára gömul. Ég er samviskusöm, skipulögð og mjög stundvís, og legg mig ávallt 100% fram í öllu sem ég tek mér fyrir hendur. Ég hef gaman af því að vinna með börnum og tek virkan þátt í félagslífi bæði í vinnu og skóla. Áður starfaði ég í þrjú ár hjá Sports Direct og var meðal annars í starfsmannafélaginu og skemmtinefndinni. Í dag starfa ég sem kvöldvaktstjóri á veitingastað og gegni einnig hlutverki trúnaðarmanns. Ég er lærður öryggistrúnaðarmaður hjá Vinnueftirlitinu. Mér finnst mikilvægt að leggja mitt af mörkum til góðs starfsanda og hlýlegs, öruggs umhverfis, bæði fyrir börn og samstarfsfólk.
staff
Jóhanna Gunnarsdóttir
Snemmtæk íhlutun
Ég útskrifaðist frá Kennaraháskóla Íslands árið 1995 og hef unnið síðan þá í grunnskóla og leikskóla. Ég hef verið umsjónarkennari í 21 ár og leikskólakennari og deildarstjóri í leikskóla í 6 ár. Þar að auki sinnti ég stöðu snemmtækrar íhlutunar síðastliðið skólár í leikskóla. Áhugamál mín eru nám og umhverfi barna, fjölskylda, vinir, útivist og bækur.
staff
Karitas Guðrún Jóhannsdóttir
Leiðbeinandi í afleysingum
Ég heiti Karitas og ég er 20 ára gömul. Ég er fædd í Svíþjóð en er ættuð frá höfuðborgarsvæðinu og Vestmannaeyjum. Ég var að útskrifast frá Menntaskólanum í Kópavogi, var á raungreinabraut. Akrar er annar leikskólinn sem ég vinn á. Ég hef verið að vinna á Ökrum með náminu. Akrar eru frábær leikskóli og ég veit ekkert betra en að vinna þar.
staff
Kataqui D. Valle Briceno Jordan
Leikskólakennari
Engi
Ég heiti Kataqui Jordan en fjölskyldan mín og vinir kalla mig Kathy. Eg kom til Íslands í febrúar 2022. Fjölskyldan mín er samhent og dugleg. Ég er menntaður leikskólakennari, lærði í háskóla í Venezuela og elska að vinna með börnum. Ég er áhugasöm manneskja, með ábyrgðartilfinningu, vingjarnleg, vinnusöm og með mikinn vilja til að hjálpa öðrum og læra meira. Markmið mín núna eru að ná er að tala betri íslensku til að leggja mitt af mörkum í starfi mínu og bæta samskipti mín við vinnufélagana og nemendurna. Ég er búin að fara á mörg námskeið og held áfram að sækja nám í íslensku. Ég er mjög áhugasamur um skuldbindinguna og tækifærið til að leggja mitt af mörkum til menntunar akrarfjölskyldunnar.
staff
Kateryna-Pavlyna Reptak
Háskólamenntaður starfsmaður
Mýri
Ég heiti Kateryna og er frá Úkraínu. Ég er menntaður landafræðikennari og hef unnið lengi með börnum bæði í grunnskóla og í háskóla í Úkraínu. Ég flutti til Íslands árið 2022 og byrjaði að vinna í Kjalarnesi. Í október 2023 ég byrjaði að vinna í leikskóla í Mosfellsbæ. Samhliða starfi mínu hóf ég nám í íslensku við Háskóla Bifröst. Frá janúar hef ég starfað á Ökrum og finnst mér það mjög gefandi og skemmtilegt. Ég er nú einnig í námi við Háskóla Íslands með það markmið að fá kennsluréttindi hér á landi. Mér finnst einstaklega ánægjulegt að vinna með börnum – þau veita manni alltaf nýja sýn á lífið og kenna manni jafn mikið og maður kennir þeim. Mér finnst gott að sjá börnin vaxa, þroskast og finna sínar sterku hliðar og ég legg mikið upp úr því að skapa jákvætt og hvetjandi námsumhverfi. Áhugamál mín eru náttúran, spennandi verkefni og ferðalög.
staff
Klaudia Dominika Pétursdóttir
Leiðbeinandi
Mói
Ég er fædd í Póllandi og flutti til Íslands árið 2005. Ég er þriggja barna móðir og legg mikla áherslu á fjölskyldu og uppeldi. Ég er í námi og stefni á að fara í uppeldis- og menntunarfræði. Mér finnst gaman vera kringum börn, þau bera með sér óendanlega forvitni, hlýju og gleði sem smitar út frá sér. Finnst ótrúlega mikilvægt að styðja við börn í daglegu lífi á þeirra eigin hraða. Ég tel mig vera jákvæða og hlýja manneskju. Ég hef gaman af því að vera úti í náttúrunni, hreyfa mig og eyða gæðatíma með fjölskyldunni minni.
staff
Kristín Birna Atladóttir
Deildarstjóri í leikskóla
Lyng
Ég fæddist í Reykjavík, var í leikskóla í Grafarvogi en flutti svo 6 ára í Hafnarfjörð og bý þar enn. Ég gekk í grunnskóla í Hafnarfirði. Ég útskrifaðist frá Keili á háskólabraut úr félagsvísinda- og lagadeild vorið 2020. Haustið 2024 byrjaði ég svo í kennaranámi í Háskólanum á Akureyri með leikskóla kjörsvið. Ég hef alltaf verið mikið í kringum börn þegar ég var yngri. Ég var mikið að passa börn, bæði vina og fjölskyldu. Ég hóf störf á Ökrum í október 2012, og hef ég hef sinnt hinum ýmsu störfum á Ökrum. Ég byrjaði sem starfsmaður í afleysingu fyrsta árið en fór eftir það á eldri deilir. Eftir nokkur ár á eldri deildum langaði mig til að breyta og færði mig á Móa og hef ég verið þar bæði sem starfsmaður og deildarstjóri. Ég hef einnig aðstoðað við ýmis störf tengd stjórnun og finnst gefandi að aðstoða samstarfsfólk mitt.
staff
Kristín Rós Hákonardóttir
Háskólamenntaður deildarstjóri
Mýri
Ég er fædd og uppalin í Breiðholtinu og byrjaði að æfa sund 7 ára að aldri og hef keppt bæði hérlendis og erlendis í fjöldamörg ár. Ég útskrifaðist frá Fjölbraut í Breiðholti 1995 þaðan sem ég fór í Listaháskóla Íslands og í Kennaraháskólann og útskrifaðist árið 2002 með BA í grafískri hönnun og með kennsluréttindi. Ég hef verið sundþjálfari, leikskólakennari, umsjónarkennari á yngra og miðstigi í grunnskóla sem og í sérkennsluveri, einnig hef ég kennt í Öskjuhlíðarskóla (Klettaskóla) sem sérkennari. Ég er tveggja bara móðir og mér finnst mjög dýrmætt að ala upp og hlúa að börnunum mínum. Alla mína ævi hef ég verið umvafin börnum í lífi mínu og í starfi og finnst gaman að sjá þau þroskast og dafna. Mér finnst þetta starf mjög gefandi og það er svo frábært að vinna með góðu fólki sem sinnir starfi sínu vel.
staff
Kristján Ágúst Ólafsson
Leiðbeinandi í stuðningi
Ég heiti Kristján, oft kallaður Stjáni. Ég er uppalinn í Garðabæ og bý nú í Hlíðunum. Ég er að ljúka stúdentsprófi við Menntaskólann á Tröllaskaga. Síðan í janúar 2025 hef ég starfað á Ökrum sem leiðbeinandi í stuðningi. Ég hef einnig unnið sem leiðbeinandi á öðrum leikskólum og hef mikinn áhuga á að starfa með börnum. Helstu áhugamál mín eru glíma, tónlistarsköpun og -hlustun, auk þess sem ég hef gaman af að prófa mig áfram í matreiðslu.
staff
Lilja Rós Thomasdóttir Viderö
Leiðbeinandi í afleysingum
Ég heiti Lilja Rós og er uppalin í Garðabænum. Er hálfur Færeyingur og algjör orkubolti. Ég hef starfað á Ökrum síðan mars 2023 og fann strax hvað leikskólastarf er gefandi og mikilvægt og hvað ég átti heima þarna. Ég hef bæði verið í fullu starfi þegar frí er frá náminu mínu og hlutastarfi á meðan skólanum stendur. Það er hápunktur vikunnar minnar að mæta í vinnuna og fá að hitta þessi frábæru, dásamlegu börn. Ég hef mikinn áhuga á myndlist og sköpun og reyni að nýta það í uppbyggilegu starfi með börnunum.
staff
Ljósbrá Dögg Ragnarsdóttir
Sérkennslustjóri
Fædd og uppalinn á Höfn í Hornafirði. Útskrifaðist sem B.A. gráðu í Þroskaþjálfafræði 2019. Samhliða námi hef ég starfað í leikskóla frá árinu 2015 sem leiðbeinandi, stuðningur og sem sérkennslustjóri frá árinu 2023. Mitt hlutverk er að bera ábyrgð á utanumhaldi, skipulagningu og framkvæmd sérkennslunnar, gera einstaklingsnámskrá og fleira. Veita ráðgjöf varðandi snemmtæka íhlutun ásamt Jóhönnu. Sé ég einnig um fræðslu tilfinninga og vináttuverkefni barnaheilla, Blær. Er ég einnig hluti af lausnateymi í þrepaskiptri þjónustu. Ég er í viðbótar diplómunámi á félagsráðgjafadeild í Farsæld barna og er einnig tengiliður farsældar í leikskólanum.
staff
Margrét Árnadóttir
Leiðbeinandi
Mói
Ég er fædd og uppalin á Hofsósi sem er mjög lítið þorp í Skagafirði og hef búið þar meira og minna. Ég byrjaði að vinna hér á Ökrum 1. október 2024. Ég byrjaði á Mýri en er nú komin á Móa og finn mig mjög vel á báðum stöðum. Ég útskrifaðist með stúdentspróf á viðskipta- og hagfræðibraut úr VMA árið 2013, einnig útskrifaðist ég sem búfræðingur úr Landbúnaðarháskóla Íslands árið 2018. Eftir námið í VMA flutti ég til Belfast og vann þar sem au-pair í 8 mánuði. Ég vann á leikskólanum Ársölum á Sauðárkróki veturinn 2019 – 2020. Ég hef alltaf fundið mig vel í starfi með börnum. Ég vinn líka í sveit eins og í maí fer ég alltaf í sauðburð og fer líka alltaf í september að hjálpa bændum að ná kindunum af fjöllum. Ég hef verið að vinna í fjósi í Hjaltadalnum síðan ágúst 2023 sem er orðið minna eftir ég flutti í bæinn en ég er algjör sveitamanneskja í húð og hár og finnst krökkunum mjög gaman að heyra mig tala um sveitalífið, held ég allavega. Ég hef alltaf haft gaman af börnum, passaði frændsystkin mín reglulega þegar þau voru á þeim aldri. Mér finnst gaman að læra af börnunum því við leiðbeinendur og kennarar lærum ekkert síður af þeim en þau af okkur. Mjög skemmtilegt að lenda í góðum samræðum við þau. Þetta starf er gefandi og frábært að vinna með þessum frábæru krökkum og einnig er samstarfsfólkið frábært líka og náum við öll mjög vel saman. Áhugamálin mín eru ferðalög, tími með fjölskyldu og vinum, sund, ræktin og svo Formúla 1 svo eitthvað sé nefnt.
staff
Margrét Björg Birgisdóttir
Háskólamenntaður deildarstjóri
Mói
Ég heiti Margrét en er oftast kölluð Magga og er uppalin í Kópavoginum. Ég er með stúdentspróf úr Fjölbrautaskólanum í Garðabæ af listnámsbraut, leiklistarsviði, og árið 2024 útskrifaðist ég með B.A. gráðu í sagnfræði úr Háskóla Íslands. Ég hef áður unnið á námskeiðum með börnum sem hafa verið á aldrinum 6-12 ára sem mér fannst mjög gefandi og leitaðist ég eftir því að vinna með börnum þegar háskólanámi mínum lauk. Ég var mjög heppin að hafa fengið starf hér og hefur það gefið mér ótrúlega mikið og er ég alltaf spennt að sjá hvað hver dagur hefur uppá að bjóða því engir tveir dagar eru eins. Ég byrjaði sem leiðbeinandi og var aðallega á Móa og Lyngi en fór þó í nokkrar heimsóknir á eldri deildirnar. Síðan í nóvember tók ég við sem deildarstjóri á Móa. Helstu áhugamál mín eru að fara í leikhús, baka, lesa, föndra, tónlist og saga.
staff
Marisela F Mathison Andrade
Leiðbeinandi
Mýri
Ég heiti Marisela Mathison Andrade, fædd í Venesúela, og flutti til Íslands í desember 2021. Ísland hefur tekið á móti mér af hlýju og opnað mér nýjar leiðir. Frá komu minni hef ég heillast af einstökum fegurð landsins, töfrum þess og sérstöku ljósi sem umlykur hvern stað – ljósi sem innblæs og gefur von. Ég er menntaður Alþjóðafræðingur og starfaði í meira en tvo áratugi á sviðum sem tengjast opinberri þjónustu og köllun minni til að hjálpa öðrum. Hér á Íslandi hef ég hins vegar uppgötvað eina af fegurstu köllunum: að vinna með börnum. Mér finnst dýrmætt að starfa í umhverfi þar sem gleði, góð orka, samvinna, sátt og liðsheild ríkja, því ég trúi að þessi gildi auðgi bæði börn og fullorðna. Frá því ég kom hingað hefur Akrar leikskóli verið minn fyrsti og eini vinnustaður á Íslandi, og ég er innilega þakklát fyrir hlýjuna og kærleikann sem ég hef mætt á þessari vegferð. Á hverjum degi samsama ég mig fullkomlega þeim gildum og stefnu sem leikskólinn stendur fyrir, og þau veita mér innblástur í starfi mínu. Fyrir mér er hver einasti dagur í leikskólanum blessun og tækifæri til að vaxa. Það veitir mér innblástur að sjá hvernig börnin læra, tjá sig og uppgötva heiminn af slíkri hreinleika. Að fylgja þeim í þroskaferli sínu er einnig persónuleg lærdómsferð, þar sem þau kenna mér jafnmikið og ég þeim; mínir litlu og stóru kennarar, eins og mér finnst fallegt að kalla þau, minna mig á að það er alltaf eitthvað nýtt að læra. Ég trúi innilega á mikilvægi þess að skapa umhverfi fullt af virðingu, gleði og ást, þar sem hvert barn getur fundið öryggi til að kanna og vera það sjálft. Mér þykir vænt um að sameina þolinmæði, hlustun og sköpunargleði í gegnum daglegt samneyti. Skuldbinding mín er að halda áfram að gefa af hjarta, með einlægni og hlýju, og sá fræi ljóss og trausts í hvert barn, svo það geti blómstrað alla ævi. Og með þakklæti segi ég að hvert barn sem fer um líf mitt skilur eftir sig fræ ljóss og ástar í hjarta mér, sem mun fylgja mér um ókomin ár.
staff
Rita Louro Pereira
Leiðbeinandi í leikskóla
Lyng
Ég heiti Rita og er 22 ára. Ég er frá Portúgal og er búin að búa á Íslandi í 6 ár. Ég er að byrja í vetur í fjarnámi í viðskiptafræði. Mér finnst mjög gaman að vera í kringum börn og leika við þau. Ég hef unnið á Ökrum í tvö ár.
staff
Sandra Jónsdóttir
Stuðningur
Ég vann á leikskólanum Sjálandi skólaárið 2023-2024. Ég er með mastersgráðu í uppeldis- og menntunarfræði og hef unnið með börnum ásamt því að eiga þrjú börn sjálf. Mér finnst ótrúlega gefandi að fá að styðja við börn sem þurfa á því að halda og fá að eiga þátt í þeirra þroska á þessu fyrsta skólastigi. Í frítímanum mínum finnst mér best að vera í ræktinni;-)
staff
Sóldís Björt Leifsd. Blöndal
Hlutastarfsmaður
Mói
Ég er fædd í Reykjavík en ég hef alla mína ævi búið á Suðureyri í Súgandafirði. Fyrir 5 árum þá 17 ára gömul flutti ég ein suður til þess að eltast við drauminn að spila blak í efstu deild. Ég hef æft blak frá því ég var 5 ára gömul og í dag spila ég blak með meistaraflokki kvk Aftureldingar. Ég byrjaði að vinna á leikskólanum Ökrum í byrjun september árið 2024. En áður en ég byrjaði á Ökrum að þá vann ég á öðrum leikskóla í sirka 2 ár. Áhugamálin mín eru blak, hreyfing og að eyða tíma með fjölskyldunni minni þar sem að ég hitti þau ekki oft. Mér finnst gaman að teikna, lita og föndra. Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á að starfa með börnum og að fá að starfa við það í æðislegum vinnuanda og með yndislegu samstarfsfólki mínu er svo mikill plús. Ég dýrka hvað þetta starf er gefandi og skemmtilegt.
staff
Steinunn L Sigurðardóttir
Aðstoð í eldhúsi/mötuneyti
Ég heiti Steinunn Lilja. Ég byrjaði að vinna hér á Ökrum 14. október árið 2013 og líkar mjög vel. Ég er fædd og uppalin í Hafnarfirði og bý þar enn.
staff
Stella Björk Einarsdóttir
Háskólamenntaður deildarstjóri
Engi
Ég heiti Stella, fædd í Svíþjóð en er alin upp í Keflavík. Eftir stúdentspróf af Hönnunar- og markaðsbraut í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ tók ég mér árs pásu frá námi og hóf störf á leikskóla. Sú reynsla reyndist afar gefandi og vakti áhuga minn á starfi með börnum, sem leiddi mig í háskólanám í Uppeldis- og menntunarfræði. Að loknu námi starfaði ég í grunnskóla um tíma en áttaði mig fljótt á því að mér þætti leikskólastarfið fjölbreyttara og skemmtilegra, börn á þessum aldri eru svo lífsglöð og einlæg. Árið 2023 eignaðist ég son og eftir fæðingarorlof hóf ég störf sem deildarstjóri á Leikskóla Seltjarnarness. Það starf átti vel við mig og ég hlakka til að nýta þá reynslu á Ökrum:)
staff
Sædís Líf Gunnarsdóttir
Leiðbeinandi
Ég er 23 ára gömul og hef starfað sem leiðbeinandi á Lyngi síðan í september og gæti ekki verið þakklátari fyrir samstarfsfólkið mitt og vinnustað. Áhugamálin mín er hreyfing, eiga gæðastund með vinum og fjölskyldu. Ég starfaði sem stuðningur á leikskóla í þrjú ár ásamt því að vera stuðningur hjá hafnafjarðarbæ áður en ég byrjaði á Akraleikskóla. Ég útskrifaðist úr fjölbrautaskólanum í Mosfellsbæ og stefni á að fara í sálfræði í Háskólanum í Reykjavík á næsta ári. Ég hef farið á ýmis námskeið sem kennir jákvæðan aga og einnig farið í námskeið tengt mannlegum samskiptum. Mér finnst svakalega gefandi að vinna með börnum og fá að taka þátt í því að móta þau. Ég legg mikla áherslu á að mynda gott traust á milli mín, barnanna og samstarfsaðila minna, svo við getum unnið í samvinnu og átt við góð samskipti.
staff
Valerio Gargiulo
Háskólamenntaður starfsmaður
Mýri
Ég er fæddur og uppalinn í Napólí á Ítalíu en hef búið á Íslandi síðan 2002. Ég lauk námi í lögfræði frá Háskólanum í Napólí og síðar LL.M. gráðu frá Háskólanum í Reykjavík árið 2015. Ég hef starfað við kennslu bæði á Ítalíu, í Svíþjóð og á Íslandi, meðal annars sem leikskólakennari og sem kennari í tungumálum. Ég hef einnig reynslu af ritstörfum, verkefnastjórnun og skapandi vinnu með börnum. Ég er höfundur fjölmargra bóka fyrir börn og fullorðna og hef sérstakan áhuga á að tengja saman sköpun og nám. Ég er stoltur faðir og finnst afar gefandi að fylgjast með börnum þroskast og dafna. Mér finnst mikilvægt að skapa hlýlegt og öruggt umhverfi þar sem öll börn geta blómstrað. Það er mér sönn ánægja að vinna með góðu fólki sem vinnur starf sitt af ástríðu og alúð.
staff
Viktoría Rós Magnúsdóttir
Leiðbeinandi
Engi
Ég heiti Viktoría Rós Magnúsdóttir og er 19 ára. Ég er jákvæð, þjónustulind og metnaðarfull í öllu sem ég tek mér fyrir hendur. Ég er stundvís, skipulögð og vinn alltaf af heilum hug og legg mig 100% fram og er fljót að tileinka mér ný verkefni og nýja færni. Mér finnst einstaklega gefandi að vinna með börnum og skapa hlýlegt, öruggt og nærandi umhverfi fyrir þau. Ég hef unnið við fjölbreytt störf og fengið dýrmæta reynslu sem nýtist mér daglega í leikskólastarfinu. Ég nýt þess að vinna í teymi, styðja samstarfsfólk mitt og takast á við verkefni undir álagi með jákvæðu hugarfari. Það gefur mér mikið að kynnast nýju fólki og byggja góð tengsl bæði við börnin, foreldra og samstarfsfólk. Mér finnst frábært að fá að starfa með frábærum hópi barna á Ökrum og ég hlakka til að taka þátt í öllu því skemmtilega sem fram undan er.
staff
Þórunn Hanna Gunnarsdóttir
Hlutastarfsmaður
Ég heiti Þórunn Hanna Gunnarsdóttir, ég er 20 ára gömul og er uppalin hér í Garðabænum. Ég útskrifaðist með stúdentspróf af félagsvísindabraut frá Fjölbrautaskóla Garðabæjar vorið 2023 og byrjaði að vinna á Ökrum það sumar. Núna stunda ég nám í sálfræði í Háskóla Íslands og er þar á öðru ári. Ég hef frá ungum aldri unnið mikið með börnum. Fyrsta vinnan mín var sem fimleikaþjálfari hjá Stjörnunni og svo vann ég líka á leikskólanum Bæjarbóli sumarið eftir að ég útskrifaðist úr grunnskóla. Í dag starfa ég líka sem sjálfboðaliði í Erninum sem er styrktar- og minningarfélag fyrir börn og ungmenni sem hafa misst náin ástvin. Ég hef alla tíð haft mikinn áhuga á allskonar íþróttum og hreyfingu, útiveru og síðustu ár hef ég tekið upp ýmis áhugamál eins og að prjóna og baka. Mér þykir ótrúlega gaman að vinna á Ökrum og legg mig fram við að hlúa vel að börnunum alla daga.
staff
Þórunn Rebekka Ingvarsdóttir
Háskólamenntaður starfsmaður
Ég heiti Þórunn og hef unnið á Ökrum samhliða námi síðan í maí 2025. Ég er fædd í Svíþjóð en ólst upp í Garðabæ. Ég er með BS-gráðu í líffræði og stunda nú meistaranám í iðnaðarlíftækni við Háskóla Íslands. Mér finnst mjög gaman og gefandi að vinna með börnum. Ég hef áður starfað á leikskóla, bæði sem stuðningsaðili og inn á deild, og hef einnig kennt á hestanámskeiðum í mörg ár. Ég og mamma mín höldum reglulega dýra- og listanámskeið fyrir börn í hesthúsinu okkar, þar sem börnin fá að kynnast dýrum, læra um umönnun þeirra og fá einnig kennslu í myndlist. Mér finnst æðislegt að vinna á Ökrum og hlakka alltaf til að mæta í vinnuna. Ég hef mikinn áhuga á myndlist, hestamennsku, dýrum og hreyfingu og finnst mjög gaman að læra nýja hluti.
© 2016 - 2026 Karellen