Karellen
news

Forvarnarvika og vináttuganga

10. 11. 2025

Forvarnavika Garðabæjar var 29. október-5. nóvember. Forvarnaþemu haustsins 2025 voru “Vellíðan og velferð” Við á Ökrum unnum ýmis verkefni með okkar börnum. Föstudaginn 31. október var vinastund okkar (sameiginleg söngstund á sal) með lögum tengdum þemunum. Þá komu öll börnin með bangsann Blæ með sér í vinastundina.Banginn Blær er tengdur Vináttuverkefninu frá Barnaheil sem er forvarnarverkefni gegn einelti fyrir ung börn. Við vinnum allt skólaárið markvisst með þetta mikilvæga verkefni en það þjálfar félagsfærni og samskipti og stuðlar að góðum skólabrag. Mánudaginn 3. nóvember þá fórum við öll saman í ,,Vinagöngu,, í kringum leikskólann. Börnin á Mýri leiddu vini sína á Móa og börnin á Engi leiddu vini sína á Lyngi. Á miðri leið stoppuðum við, snérum að leikskólanum og sungum saman Akralagið. Í forvarnarvikunni lögðum við sérstaka áherslu á bækur og lög tengd vellíðan og velferð.

© 2016 - 2026 Karellen