Karellen
news

Jólaball og aðventukaffi

12. 12. 2025

Í dag var jólaball Akra og aðventukaffi fyrir fjölskylduna. Um morguninn voru tvö jólaböll, annað fyrir börnin á yngri tveimur deildunum og hitt fyrir börnin á eldri deildunum. Við vorum svo heppin að fá heimsókn frá bæði Stekkjastaur og Stúfi sem gáfu öllum börnunum jólasveinahúfur. Fjölskyldur barnanna komu svo í heimsókn um hálf þrjú og áttu góðan tíma ásamt börnunum sínum fram til lokunar. Buðu börnin í kaffi, kleinur og smákökur sem þau höfðu búið til sjálf tveimur dögum fyrr. Mjög gaman var að sjá hve margir sáu sér fært að koma og fóru allir glaðir út í helgarfrí.

© 2016 - 2026 Karellen