Íþróttadagur Akra var haldinn 29. september. Fjóla íþróttakennari okkar var búin að skipuleggja stöðvar og áttu öll börnin að fara í gegnum ýmsar þrautir úti á skólalóðinni. Veðrið var ekki ,,með okkur í liði,, og breyttum við því og var allt rými leikskólans nýtt undir þrautir fyrir hádegi. Þau börn sem vildu fengu að koma með grænmeti að heiman og setja í stóran pott og borðuðum við öll saman ,,íþróttasúpu,, í hádeginu. Eftir hádegi lægði og fóru öll börnin út í hreyfingu. Þessi dagur var mjög vel heppnaður og er hann kominn til að vera í skipulagi okkar. Allir starfsmenn hjálpuðust að með bros á vör og fóru börnin sæl heim eftir daginn.