Í gær var öskudagur og þá komu flest börnin annað hvort í búningum eða náttfötum. Dagurinn var frábær í alla staði. Fyrir hádegi fengu öll börnin að koma í salinn og reyna að ,,slá köttinn úr tunnunni,,. Þegar kassinn opnaðist þá fengu öll börnin poka með snakki sem þau gæddu sér á saman. Þetta vakti mikla lukku og reynum við að halda í ákveðnar hefðir til að gleðja þau.