Karellen
news

Þemavinna

26. 09. 2025

Þetta skólaárið vinnum við á Ökrum með ákveðin þemu í hverjum mánuði. Við fléttum þau m.a. inn í hópastarf, bókalestur og lögin sem við syngjum.

Í ágúst er áhersla á persónulegar kynningar, fjölskyldu, vini og dagskipulag og reglur.

Í september er það vinátta, kurteisi, líðan og líkami.

Í október er það haustið, uppskera, lauf, grasker, epli, safna og deila. Hrekkjarvaka.

Í nóvember er það vetrarveður, vetur og snjór. Dýr sem leggjast í dvala og dýr sem lifa í köldu loftslagi. Dagur íslenskar tungu.

Í desember er það samfélag og störf. Hátíðahöld og jól.

Í janúar vinnum við með árstíðir og veður.

Í febrúar eru það vísindi, geimurinn og pláneturnar.

Í mars er það vor og vöxtur. Lífsferlar fiðrildis. Sveitin og húsdýrin.

Í apríl er það skordýr eða „pöddur“, búsvæði og lífsferlar.

Í maí er það vatn og höf. Vatnsuppspretta, mikilvægi vatns og dýr sjávar.

Í júní er þaðsumarið, sumarskemmtun og rifja upp hugtök.

© 2016 - 2026 Karellen