Karellen
news

Sveitaferð

28. 05. 2025

Í dag fórum við í sveitaferð í Miðdal í Kjós í boði foreldrafélagsins. Við vorum afar heppin með veður og skemmtu allir sér konunglega innan um dýrin og náttúruna. Dýrin vöktu eins og búast mátti við mikla lukku, leiksvæðið úti var vel sótt og þá voru margir sem prófuðu að róla sér inni í hlöðu og detta mjúklega í heyið. Meðlimir foreldrafélagsins grilluðu pylsur ofan í mannskapinn og fóru allir heim með bros á vör.

© 2016 - 2026 Karellen