Sumarhátíð Akra fór fram í dag. Um morguninn voru tveir hoppukastalar settir upp á lóðinni og fengu öll börnin að hoppa á þeim fyrir hádegi. Eftir hvíld var börnunum boðið að koma inn í íþróttasal þar sem starfsmenn buðu upp á andlitsmálningu. Hátíðin sjálf hófst síðan á sýningu með Sollu stirðu og Höllu hrekkjusvín. Á meðan sýningu stóð þá fengu allir ís og fram að lokun leikskólans þá skemmtu börnin sér konunglega í hoppukastölunum, við að leika sér með blöðruleikföng sem þau fengu að gjöf eða í öðrum leik úti í góða veðrinu. Frábær dagur í alla staði og þökkum við meðlimum foreldrafélagsins fyrir frábæra samvinnu.