Í dag kom slökkviliðið í heimsókn til okkar á Ökrum. Tilgangur heimsóknarinnar var kynning fyrir elstu börn leikskólans varðandi ýmis öryggismál. Í lok fræðslunnar fengu börnin elstu börnin að fara út með slökkviliðsmönnunum og sjá búnaðinn í bílnum. Við notuðum að sjálfsögðu tækifærið og leyfðum öllum öðrum börnum að koma inn í litla garð og fylgjast með úr fjarska. Þetta vakti mikla kátínu og ekki síst þegar þau keyrðu í burtu með blikkandi ljós og sírenur.