Karellen
news

Gulur dagur - vinnum með þakklæti

10. 09. 2025

Í dag var gulur dagur því við viljum sína stuðning við geðheilbrigði og sjálfsvígsforvarnir. Við lásum bók þar sem kærleikur og þakklæti komu fyrir og ræddum við börnin um mikilvægi þess að vera þakklátur og koma vel fram við alla. Gerðu öll börn leikskólans gul hjörtu. Þau yngstu máluðu hjörtu en þau sem eldri voru sögðu frá því sem þau voru þakklát fyrir og skrifuðu starfsmenn það á hjörtun þeirra. Fengu þau svo að velja hvort þau teiknuðu líka á hjörtun sín.

© 2016 - 2026 Karellen