Í dag var fjölskyldukaffi á Ökrum. Var dásamlegt að sjá hversu margir sáu sér fært að koma og eiga góða stund með börnunum. Allir fjölskyldumeðlimir voru velkomnir og mátti sjá allt frá nokkurra mánaða systkinum til eldri kynslóða. Slíkar stundir eru dýrmætar fyrir alla og var mikil tilhlökkun allan daginn.